19.04.2012 22:50NetleysiVá sælll, búið að vera internetslaus í margar vikur, komin með fráhvarfseinkenni. En það fer nú þá að detta í gang aftur svona allavega smá um hvað er að gerast svona í daglegum önnum hjá okkur. Það kom verknemi til okkar Helga strax eftir páska hollensk stelpa sem heitir Ninní, held ég skrifi þetta rétt, en hún er mjög fín og dugleg;) En það er svosem ekki meira í bili ákvað að láta vita að þetta er ekki allveg dautt hérna, fer að fara í gang eftir erfiða tíma hahah ekkert internet er bara ekki hægt í dag... bara ekki hægt það er bara þannig;) fórum suður þarna rétt fyrir páskana og ég seldi þar á leiðinni Ljósu merina mína, síðan þegar ég var komin í Kolsholt seldum við líka Sólonson sem Helgi átti, hann á að fara út bráðlega, það má bara segja að það sé svona að lifana yfir sölu, sem er bara gott. Sæþór fékk barna hnakk í láni hjá frænda sínum Mána ídag og svo fór hann á Freyju og mamman teymdi hann um hringvöllin, ægilegur hestakall þar á ferð;) Svo er planið að fara til afa Guðna um helgina það á fara byrja bera svo það er ekkert annað að gera en að fara og finna smá lykt af sætu lambi, vúhú;) kv. Oddný Skrifað af Oddný 25.03.2012 19:59Ýmislegt að gerastJæja vá gleymdi mér aðeins, en það eru komnar nokkrar myndir af Mývatn Open og Stjörnutöltinu, og svo fórum við Helgi niður á ísana neðan við torfunes og tókum skemmtilegar myndir af nokkrum hestum. Síðan komu Guðjón Sigurðsson og Steindór Steindórsson semsagt pabbi og frændi Helga í heimsókn að skoða hestana hjá okkur, Guðjón fékk náttlega að sjá gæðingana sína hana Blesu(Eldingu) og Melódíu og einnig gránu en hún var nú eginlega bara afskrifuð það er bara stundum þannig, sjáum til. ;) Elding frá Reykjavík Þetta er Glæða frá Hryggstekk blæs dóttir sem á að reyna sýna í vor;) Já mín lagði á skeið allt að gerast;) Þrándur frá Sauðárkrók, í fanta formi, stefn að sýna hann í vor Já svona fór um sjóferð þessa, þetta var skemmtilegur dagur líka gaman að það séu myndir af mér þar sem ég er alltaf á myndavelinni;) kv. Oddný Skrifað af Oddný Lára 05.03.2012 13:41Myndir af ýmsu;)Jæja það var mikið að gera um helgina, tókum myndir af nokkrum hestum og svo var reiðnámskeið á vegum æskulýðsnefndar þjálfa, og ég var að kenna. Það voru krakkar bæði alveg óvön og svo vön og svo meira vön. 3 hópar í 2 tíma, þannig að ég var alveg búin á því í gærkvöldi, er reyndar heima núna með einn lasarus sem ætlar ekki að ná sér upp úr hita og kvefi. Vonandi kemur það bráðum. Helgi greyið ríður einn út í dag. Hérna eru nokkrar myndir og ég var að bæta líka inn í tamningarhestana. Einnig eru myndir í myndaalmbúminu af námskeiðinu sem Birna Hólmgeirsdóttir frá Staðarhóli tók af námskeiðinu á mína myndavél;) Mist frá Torfunesi Fiðla frá Baldurhaga:) Jæja svo eru fleiri myndir inn í Myndaalmbúminu, þar eru líka myndir af reiðnámskeiðinu og fjölskyldumyndir svona fyrir ættingjana;) kv. Oddný Skrifað af Oddný Lára 28.02.2012 14:27Kea mótaröð og fleiraJæja við Helgi fórum á kea mótaröðina í fimmgang á fimmudagskvöldið síðasta og það var bara helvíti gaman, þessi höll er náttúrulega mjög góð, lýsingin og svo er maður svo nálægt hestinum, frábær höll. Helgi fór með Bratt frá tóftum og var þetta svona prufa hvort hann myndi skeiða, hann er búin að vera frekar mikið fjórtaktaður á skeiði, fékk fyrst 8 fyrir skeið í kynbótadóm en svo bara 7 í síðsumarsýnigunni, þannig það er svona spurning, en það er ekki spurning lengur því hann er klárlega bara svona rosalega rúmur á tölti. Þannig að það verður bara farið með hann í töltið næst;) Pétur Vopni sem var að dæma þara sagði bara við Helga að þetta færi allveg frábær fjórgangshestur. En Brattur var mjög flottur og stóð sig með prýði og dómarar sögðu að hann væri að fá svona 7.5 fyrir tölt sem er mjög gottttt.;) Hérna eru nokkrar svipmyndir af kea röðinni og svo fleiri í albúmi í myndum.;) Ég á hérna leirljósa meri sem mig langar aðeins að sýna hérna, hún er til sölu, fín meri með góðum fótaburð, mög þæg í umgeng og viljug. Skrifað af Oddný Lára 17.02.2012 09:05Komnar myndirJæja gott fólk það er komið nýtt almbúm í myndir frá keppninni á ólafsfjarðarvatni. Síðan vorum við Helgi aðeins að leika okkur að taka mydnir af hestunum Bratt frá Tóftum og Þránd frá sauðárkrók smá sýnishorn hérna annas meira inn í myndum, síðan eru komnar líka fleiri myndir í linkinn með tamningarhestum.;) Þrándur Brattur Amma mátti smá hjálpa ekki mikið en smá.;) sæsi var hjá afa og ömmu á laugardaginn og gisti agalega gaman í fjárhúsunum, algjör vinnuþjarkur Skrifað af Oddný Lára 11.02.2012 21:05Ísmót á ÓlafsfjarðarvatniFórum í dag og kepptum á ólafsfjarðarvatni, þar var haldið alveg stórgott tölt mót og skeið. Við kepptum í tölti og gekk það ágætlega hjá mér fyrsta skipti í keppni og fyrsta skipti á ís með 6 vetra meri efnileg en allveg frosin greyið þarna. Þetta kemur hún er af vatnsleysu kyni og hefur lítill fugl hvíslað því að mér að þau koma en koma seint, þannig að ég verð að gefa Blesu svona 7 ár;) hahaha en hvað um það Helgi Þór fór með hann Berg frá Kolshotli 2 og gekk það ágætlega hann rétt marði það inn í B - úrslit, voru jafnir í 3 neðstu sætum inn í þau, en hann vann sig upp og fór inn í A - úrsliti og endaði svo á að vinna þau líka, þannig að þegar uppi var staðið var Bergur frá Kolsholti2 sigurvegari þarna í dag. Góður hestur sem á mikið inni og verður gaman að sjá hvernig hann þróast;) en ég er orðin svo þreytt eftir daginn að myndir koma inn á morgunn ætla bara fara skella mér í sófann og sjá restina á hvaða júróvíson lag fer út;) Myndir koma á morgunn af allavega einhverjum úr A og B - úrslitum og svo bara nokkrar af skeiðurunum, ég var orðin frosin á tánum og nefi þannig ég flýði inn í bíl þarna á tíma þegar skeiðið var;) sorry en góða nótt og endilega kíkkið á morgunn verða komnar myndir þá;) Einnig veit ég að það koma myndir inn á heimasíðu Gnýfara;) overandout;) Skrifað af Oddný Lára 31.01.2012 17:34MyndadagurÁ Laugardaginn síðasta fórum við öll í Torfunes og ég og Sæþór tókum myndir af Pabbanum.;) Byrjuðum á að taka myndir af Önn sem er efnileg meri til sölu. síðan tókum við myndir af efnilegum tryppum Þetta er Elding frá Reykjavík, undan Gommu okkar, í eigu Guðjóns Sigurðsson Þessi gráa er mjög efnileg, er í gangsetningu núna hún er í eigu Guðjóns Sigurðssonar, var keypt í laufskálaréttum hún er frá Húsey og heitir Hreyfing, sem að lýsir henni bara mjög vel;) Sæsinn með sverðið klár...
Skrifað af Laura Ingjalds 30.01.2012 21:27ÓtitlaðJæja loksins er komin tölva í hús og hægt að fara hlaða inn myndum af því sem er að gerast í Torfunesi, en það er bara allt á fullu og mikið af hestum koma 3 ný hross í tamningu núna um þessi mánaðarmót ;) Það fer gríðarlega vel um okkur í Miðhvammi í Aðaldal og þetta er draumastaðurinn.... Stefnan er tekin á þorrablótið í Aðaldal sem er haldið laugardaginn næsta í Ýdölum, það verður bara gaman eins og alltaf og þá verður sko dansað fyrir allan péninginn...
Skrifað af Oddný Lára 05.01.2012 16:00ÓtitlaðJæja flutningar eru að fara af stað, er nánast búin að pakka öllu. Leggjum af stað norður heiðar á laugardaginn (ef veður leyfir). Baldvin í Torfunesi tekur fyrir okkur hesta og síðan förum við aðraferð;) þetta er þó nokkur slatti af hrossum og það fylgja okkur meira segja í tamningu frá fastakúnnum hér af suðurlandinu sem er bara gott;) gott að eiga svona frábæra viðskiptavini, enda reynum við að vanda okkur eftir bestu getu að temja og þjálfa þá. það er nú ýmislegt sem ég á eftir að lagfæra hérna á síðunni og setja inn svo hestana sem við verðum með í tamingu í vetur svo að fólk geti fylgst með;) en ég fer í að græja það þegar ég er búin að koma mér fyrir í Miðhvammi. Hérna inn á síðunni auglýsum við líka ef við höldum námskeið og þannig. Um að gera fylgjast með;) Duglegur hestakall;) Skrifað af Oddný Lára 30.12.2011 22:55í Torfunes skal haldið..Núna hafa aðstöður okkar Helga aðeins breyst og stendur til að flytja í Aðaldal, en við ætlum að fara í samstarf við Baldvin í Torfunesi og munum stofna þar tamningarstöð fljótlega eftir áramót. Þar tökum við í tamningu og þjálfun svo norðlendingar fariði nú að dusta af gæðingunum sem leynast í stóðinu. Þetta verður bara gaman, en þessi staður er svona mínir heimahagar. Það verður gaman að breyta til og sjá hvernig markaðurinn og atvinnan er í hestum þarna fyrir norðan. Við munum flytja í Miðhvamm sem er sveitabær í aðaldal og verður um 20km keyrsla í torfunes. En það kom ekkert annað til greina en að vera í sveinni. Ég þekki fólkið sem á Miðhvamm og það á eftir að vera frábært að vera þar. kv. Oddný Langaði aðeins að monta mig af nýju kerrunni sem við keyptum okkur í sumar.;) 05.12.2011 17:43ÓtitlaðJæja, þá er þessi blessaða heimasíða loksins komin í gagnið.. Eftir langa og erfiða göngu, en já hérna er ýmislegt hægt að skoða og gjörði mér bara svo vel. Hérna ætla ég að vera með fréttir og upplýsingar um það sem er að gerast hjá okkur Helga í Kolsholti 2, tamningar ganga vel og er alltaf að bætast við og upplýsingar um síma og annað er að finna hérna á síðunni. kv. Oddný
Flettingar í dag: 4 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 31 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 11782 Samtals gestir: 2864 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:56:52 |
Tamningar, þjálfun, sala, kennsla og fagleg aðstoð Nafn: Helgi Þór og Oddný LáraFarsími: 6977324/8479834Tölvupóstfang: grima87@hotmail.comHeimilisfang: MiðhvammurStaðsetning: TorfunesUm: Tamningarstöð í Torfunesi í Þingeyjarsýslu. Tökum einnig að okkur að sýna hesta í kynbótadóm, og í söluþjálfun og gerum okkar besta í að reyna selja;)Eldra efni Tenglar |