Tamningarnar

Við verðum vonandi með einhverja hesta í tamingu og ég ælta reyna vera með myndir og upplýsingar um þá hesta sem eru hjá okkur.



Fiðla frá Baldurshaga er hryssa sem við erum með frá steinari Nóna og Hugrúnu, hún er alveg efni í gríðarlega góðan fimmgangara. Hún er mjög skapstór og hefur mikið af skoðunum sem hún reynir að koma á framfæri. Hún hefur tekið gríðarlegum framförum síðasta mánuðinn en er núna á göngubretti í Hólaborg, en fer að koma heim aftur;)









svo erum við með tvo stóðhesta frá þeim en það er hann Brattur frá Tóftum sem er til sölu hérna á síðunni. Það er rosa fínn gæðingur með 8.39 fyrir hæfileika;)
Brattur er því miður farin frá okkur til nýja eigandans en það er Guðmundur Hjálmarsson á akureyri, þannig að hann fór nú ekki langt þannig að maður á örugglega eftir að sjá hann eitthvað, en óskum honum innilega til hamingju með nýja hestinn, frábær höfðingi þar á ferð;)




Fengum hest sem Steinar tók upp í Bratt, hann heitir Goði frá Reykjum, mjög stór og fallegur hestur, góðar hreyfingar og flottur hestur.
koma myndir bráðum





Þrándur frá Sauðárkrók er stóðhestur sem við erum með hann er 5 í vor rosalega hágengur fjórgangari. það verður gaman að sjá hvernig hann þróast í vetur.





Við erum 4v graðhest undan Sveini - Hervari sem er frá Torfunesi, það er efnilegur foli sem er verið að gangsetja. ein svona innimynd er bara rétt farin að stíga.


Ungur foli frá Sirrý og Rabba ég verð nú að viðurkenna að ég veit ekki hvað hann heitir, Helgi er mjög lélegur að muna nöfn og vita þau bara yfir höfuð. en þetta er stór foli sem er búin að vera í tæpar 6 vikur, tók nokkrar af honum inni í smá æfingum, það er bara næsta skref með hann að sækja gang.





Díana frá Djúpadal er Hágangsdóttir á 4 vetur, kom fyrir mánuði síðan og lofar góðu;) Eiandi hennar er Kormákur Jónsson

Fleiri myndir koma seinna af henni;)


Þrenna frá Heiðargarði er Þrists dóttir frá Feti, hún er mjög kraftmikil og skapstór en lofar góðu mikill fótaburður. Eigandi hennar er frændi minn Böðvar Baldursson


Hér er önnur frá Heiðargarði sem var í frumtamningu og er mjög efnileg Moladóttir, ótrúlega góð og þæg og með eðlis gott tölt. Nótt heitir hún, eigandi Linda Hrönn Arnþórsdóttir


(eigandinn) kom og prófaði eftir mánuð í tamningu)

Mjög efnileg meri undan Dalvar frá Auðholtshjáleigu, hún heitir Dalvör frá Stafni og í eigu Snorra Kristjánssonar í Stafni í Mývatnssveit. Hún er 5.v í vor og er mjög hágeng og lofar góðu. Hún er til sölu ef einhver hefur áhuga og er í þjálfun hjá okkur í Torfunesi.;)

Koma líka fleiri og betri myndir seinna;)
Erum einnig með markúsardóttir frá Snorra, Sól frá Stafni, mikið geng meri og efnileg

Nunna frá Norðurhlíð er meiri sem Sigríður Guðmundsdóttir á í Fagranesi.

Grár hestur frá Hömrum, lofar fínnt sem reiðhestur

Gullintoppa frá Torfunesi er í þjálfun hjá okkur og stefnt á að sýna hana ef hún verður þess leg. Eigandi hennar er Bárður Dýralæknir á Húsavík







Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 31
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 11782
Samtals gestir: 2864
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:56:52

Tamningar, þjálfun, sala, kennsla og fagleg aðstoð

Nafn:

Helgi Þór og Oddný Lára

Farsími:

6977324/8479834

Heimilisfang:

Miðhvammur

Staðsetning:

Torfunes

Um:

Tamningarstöð í Torfunesi í Þingeyjarsýslu. Tökum einnig að okkur að sýna hesta í kynbótadóm, og í söluþjálfun og gerum okkar besta í að reyna selja;)

Tenglar